Það getur verið vandasamt verk að fella tré, sérstaklega þegar að þau eru orðin mjög stór eða eru í lokuðum bakgörðum. Við erum með alvöru sagir og réttan búnað til trjáfellinga, auk þess sem starfsfólk okkar hefur mikla reynslu af trjáfellingum. Engin tré eru of stór fyrir okkur.

Við sjáum um að búta trén niður að fellingu lokinni og koma þeim á förgunarstöðvar. Einnig eitrum við rótarkerfi trjánna svo að rótin lifi ekki áfram og sprotar spretti upp eftir að tréð er farið. Einnig erum við með gröfur til að taka rótina upp sé þörf á því og lögum svo til á eftir. Að sjálfsögðu erum við tryggðir í bak og fyrir ef að eitthvað kemur fyrir – allur er varinn góður.

Fáðu okkur á staðinn og við gefum þér verðtilboð þér að kostnaðarlausu í að fella og fjarlægja tréð!