Tveggja til þriggja manna gengi sér um hellulagnir hjá Sælugörðum og hafa þeir samanlagt yfir 15 ára reynslu af hellulögnum. Við vinnum hvern einasta verkþátt af mikilli vandvirkni svo að ekki sé hætta á sigi með tímanum. Að auki leggjum við snjóbræðslur undir hellulögnina og tengjum inn í hús ef að þess er óskað, og sjá aðrir fagmenn um þann þátt verksins.

Við erum með gröfur og vörubíla til jarðvegsskipta og efnisflutninga sem gerir það að verkum að við getum boðið afar sanngjarnt verð í heildarpakkann þegar kemur að því að helluleggja. Við njótum mjög góðra verðkjara og að sjálfsögðu fá viðskiptavinir okkar að njóta þeirra í gegnum okkur.

Hringdu í okkur og fáðu tilboð í hellulögnina þér að kostnaðarlausu!

 

 

 

Hleðsluveggir

Hleðsluveggir eru bæði falleg og sniðug lausn þegar það þarf að leysa hæðarmismun á lóðum eða á milli þeirra. Hægt er að fá afar burðuga steina sem halda miklum jarðvegsþunga. Einnig geta þeir verið frístandandi þegar þarf að afmarka svæði af einhverjum ástæðum. Gríðarlega miklu máli skiptir að öll undirvinna og hleðslan sjálf sé unnin af mönnum sem kunna til verka.

Hjá Sælugörðum sér tveggja til þriggja manna gengi um að hlaða alla veggi, og hafa þeir samanlagt yfir 15 ára reynslu af margs konar hleðslum. Þú getur því treyst því að verkið verður unnið eins vel og mögulegt er. Við erum með gröfur og vörubíla til jarðvegsskipta og efnisflutninga, og getum því boðið afar hagstæð kjör í heildapakkann þegar kemur að því að hlaða veggi. Við bjóðum einnig upp á ráðleggingar á því hvaða steinar henta best miðað við aðstæður í hverju verki, og að sjálfsögðu njóta viðskiptavinir okkar þeirra hagstæðu kjara sem okkur bjóðast í gegnum okkar birgja.