Hjá Sælugörðum er einungis að finna starfsfólk með mikla reynslu og eru það fagmenn hver í sínu fagi sem vinna verkin. Við gerum miklar kröfur til okkar starfsfólks þegar kemur að vandvirkni og skjótum vinnubrögðum og skiljum ekki við okkar viðskiptavini öðruvísi en ánægða. Sælugarðar eru í Félagi Skrúðgarðyrkjumeistara

 

Sælugarðar ehf. bjóða viðskiptavinum sínum upp á þá þjónustu að sjá um að slá garðinn í áskrift. Garðeigandinn þarf þá ekki að hafa áhyggjur af því hvenær komið er að næsta slætti heldur fylgjumst við með því og höldum grasflötinni fallegri.

Fallegur sólpallur getur gert mikið fyrir útlit húsa, auk þess sem að notagildi garðsins eykst til muna. Vel smíðaður sólpallur á að endast heila mannsævi, en þá er nauðsynlegt að öllum stöðlum og reglum sé fylgt til hins ítrasta og vandað til verka.

Hellulögn er góð lausn þegar þarf að búa til göngustíga, bílastæði, gangstéttar eða einfaldlega fallegan stað í garðinum þar sem hægt er að njóta sólar og góðs veðurs. Þegar hellulagt er skiptir mestu máli að undirvinnan sé vel unninn og rétt efni notuð.